Það var mikiðHrönn Brandsdóttir
...bara bögg þegar síður leggjast niður og maður veit ekkert hvað er í gangi.Allavega... um helgina komu Kristrúnir tvær (KO/KHG) í heimsókn til okkar. Þær komu fljótlega eftir hádegið á laugardeginum svo ég hafði smá tíma til að sópa mesta draslinu í burtu áður en þær komu hehe... Lilja var ekki lengi að ná að plata KO með sér uppí herbergi að leika með dótið. Ein að passa það að bróðir fái ekki of mikla athygli hehe... Þórður eldaði síðan handa okkur ofsa góðan mat og svo eftir að hafa komið Lilju í háttinn fórum við vinkonurnar að spila. Ohh hvað það var gaman að fara í kana og það hefði verið enn skemmtilegra ef við hefðum verið 4 en þetta var samt fínt. Hef ekki spilað 3ja manna kana síðan í FSu sem var alveg fyrir 4 árum síðan já eða bara kana yfir höfuð.... Eftir að hafa spilað í góða stund skelltum við okkur í heitapottinn sem bara alveg nafn með rentu... Sunnudagurinn fór svo bara í letilíf. Lilja var að sjálfsögðu fljót að fá KO aftur að leika í herberginu. Hún átti meira að segja að klæða hana takk fyrir hehe... Við tókum síðan aðeins aftur í spil áður en nöfnurnar héldu heim á leið. Ohh það var bara næs að fá þær í heimsókn. Gaman að einhver nenni að heimsækja mann. Það er nefnilega svo skondið að fólk sem býr td í bænum er voðalega duglegt við að segja að maður eigi endilega að koma í heimsókn, næstum bara skylda mann til þess, án þess að pæla hvort maður sé kannski bara mjög upptekinn og hafi ekki tíma til heimsókna. Svo aftur á móti fólkið sem býr í bænum kvartar og kveinar yfir því að fara eitthvað út á land því það sé svo langt. Halló það er allveg jafn langt að fara frá A til B eins og B til A. Er að heyra þetta svo oft frá hinum og þessum sem búa út á landi. Nóg með það...
Hér ákvað að láta sjá sig smá snjór í dag. Allt á kafi fyrir sunnan og hér er smá föl yfir öllu. Fór með litla í vagninum út í búð og svo í bakaleiðinni komum við á leikskólann að sækja Lilju og héldum svo heim á leið. Spurning hvort maður rölti sér með Lilju í leikskólann í fyrramálið... fer reyndar alveg eftir því hvort sá stutti ákveði að sofna fyrr en síðar. Já og náttúrulega líka hvernig veður verður hehe...
Við erum dottin í skírnarpælingar á þessum bænum. Týpískt að þegar maður finnur dag til að láta skíra að já nei nei þá er bara brjál að gera hjá prestinum. Hún ætlar reyndar að láta mig vita hvort hún geti hliðrað eitthvað til hjá sér svo ég bíð bara núna eftir að hún bjalli í mig til að láta mig vita. Þá kemur bara í ljós hvort þessi dagur verði fyrir valinu eða hvort við verðum að seinka þessu.
Bless í bili...
Í hádeginu...Hrönn Brandsdóttir
...hringdi í mig hjúkrunarfræðingur frá Barnaspítala Hringsins. Hún var að gefa mér tíma fyrir þann stutta. Hann á sem sagt að fara í fleiri rannsóknir. Þann 13. febrúar á að sprauta í hann svona skuggaefni eins og gert var á Akureyri. Svo 14. febrúar á hann að fara í blöðruspeglun en þá þarf að svæfa hann.
Æ vonandi fara þeir að drífa í að klára allt þetta dæmi... Ef eitthvað er leiðinlegt að þá er það að þurfa að vera með svona lítið kríli í endalausum rannsóknum og svona spítalaveseni.
Ég vona svo bara innilega að veður verði gott um helgina. Kristrúnirnar ætla nebblega að kíkka í heimsókn... Bara gaman. Þær verða bara að sætta sig við rólegheit því ekki hefur maður mikla orku fyrir útstáelsi þar sem drengurinn er svo skemmtilegur að leyfa mömmu sinni að vaka alltaf svolítið fram yfir miðnætti. Svo er maður að vakna til að koma Lilju í föt og borða áður en hún fer á leikskólann... Næ stundum að leggja mig aftur sem betur fer en þó næ ég því ekki alltaf.
Kveð að sinni...
Ef ég væri belja...Hrönn Brandsdóttir
...þá væri löngu búið að skjóta mig! Hehe... ástæðan er sú að ég er alls ekki góð til mjalta. Ég virðist smá saman að vera að þorna upp. Þurfti um jólin að kaupa þurrmjólk því litli kútur var ekki að fá nóg í sinn mallakút. Þá var bara nóg að gefa honum smá ábót um kvöldið fyrir svefninn annars var ég alveg með nóg handa honum á daginn. Núna þarf ég orðið að gefa honum oftar ábót enda er minn maður á fullu að stækka. Ljósan kom á mánud.sl. og þá var hann orðinn 4610gr og hún giskaði á að hann væri orðinn um 59-60 sm langur. Ég entist heldur ekki mikið lengur en þetta með Lilju á brjósti en ég kenndi veikindum hennar um. En núna hef ég ekkert til að kenna um af hverju þetta endist ekki lengur núna. Nóg um mjólkurþvaður...Jólin eru víst búin... fattaði allt í einu áðan að það væri kannski skemmtilegra að taka niður jólatréð hehe...
Svona er þetta þegar maður notar ekki "betri stofuna" meira en það að maður gleymir bara hlutunum þar inni. Annars er ég enganveginn að tíma að taka niður seríurnar... verður eitthvað svo dimmt og drungalegt án þeirra.
Síðasta dag jóla lá ég í leti þangað til við þurftum að koma okkur af stað í Staðarskála til að taka á móti heimasætunni. Þegar við komum á Krókinn fórum við beint heim til Siffa (frænda Þórðar) og hans fjölsk. til að klára jólin. Eftir að hafa fengið þennan fína hamborgarhrygg í matinn og besta keypta laufabrauð sem ég hef smakkað, (eru yfirleitt óæt miðað við þessi sem við búum til heheh) fóru stelpurnar út með handblys. Ein 18 til að sjá um eldfærin og passa börnin, ein 8, tvær 5 og svo Lilja 3. Við skelltum okkur svo öll út til að sjá þegar 2 tertur voru sprengdar upp en tengdapabbi var inni með litla kút á meðan. Þegar stelpurnar voru svo búnar að fá eitt blys áður en farið var inn vildi Lilja fá meira. Það var einmitt hlegið að því að sú yngsta væri mesti sprengjuvargurinn því þessar sem eru 5 ára þorðu ekki að halda á sínum blysum.
Síðustu dagar hafa svo bara farið í afslappelsi, eins og alla hina dagana hehe...
Á mánud. þegar Lilja kom heim af leikskólanum fórum við uppí herbergið hennar til að koma fyrir dótinu sem hún fékk í jólagjöf. Hún fékk voða fínan lítinn barbie kastala sem við byrjuðum að pússla saman. Ótrúlegt hvað svona getur verið tímafrekt í samsetningu. Ég náði allavega ekki að klára það áður en komið var að háttatíma en ég rumpaði því af á meðan Lilja var í leikskólanum á þriðjud. Svo þegar Lilja kom heim fórum við í að setja upp Lego dýragarð og ýmislegt fleira...
Mig langar rosa mikið að horfa á Sex and the city þættina...þarf einhvernveginn að verða mér úti um þá... spurning hvort einhver eigi sem væri til í að lána mér. Svo langar mig líka rosa mikið núna til að fá mér gelneglur... spurning hvort maður geti grafið einhversstaðar upp hver gerir svona hér... Svo langar mig líka rosa mikið í föt... er komin með miklu meira en ógeð af þessum fötum sem ég var í á meðgöngunni. Þetta er samt allt að koma... kílóatalan er alltaf að smá minnka.
Jæja ætla að fara að leika með Lilju aðeins fyrst sá stutti sefur...
Myndir...Hrönn Brandsdóttir
Jæja fyrir þá sem hafa verið að bíða að þá er ég búin að hrúga inn myndum á www.tordarson.barnaland.is og www.liljad.barnaland.is. Eitthvað misfórst að brúka myndavélina um áramótin. Tók alveg heilar 2 myndir þá... eina af stórhænsinu og svo aðra af honum Sölva Hrannari broskalli í jakkafötunum sínum. Kannski maður fái pabba til að senda sér nokkrar þar sem hann var iðinn við nýju vélina sína. Er´þakki pabbi???Við litli kútur afrekuðum það loksins að skella okkur í göngutúr í dag. Búið að vera æðislegt veður... bærðist ekki hár á höfði svo maður fann ekki fyrir kulda þó kinnarnar segðu kannski annað. Var nú líka alveg kominn tími fyrir gott veður. Kúturinn svaf bara sem fastast og þótti þetta greinilega hið besta mál. Vonandi heldur veðrið áfram að vera gott svo maður komist sem oftast til að fara í göngutúr svona til að losna við örfá aukakíló.
Bara verð að setja eina ógeðslega sæta mynd með... Þetta eru litli kútur og litla snúlla frænka hans að leiðast. 19 dagar á milli þeirra.
Gleðilegt ár!Hrönn Brandsdóttir
Jólin eru búin að vera hin bestu þrátt fyrir mikið flakk. Mér fannst reyndar voða skrítið að vera heima hjá mér... bara ég, karlinn og börnin. Engir foreldrar sem maður er vanur í gegnum tíðina séu að elda og svona. Frumraun mín í frómas gerð heppnaðist eins og best verður á kosið. Allavega er ég bara ekki frá því að hann hafi smakkast næstum eins og mamma gerir hann hehe... Þórður eldaði síðan ofsa góðan hamborgarhrygg um kvöldið. Við Lilja höfðum fyrr um daginn sótt alla jólapakkana og settum þá undir jólatréð. Það var orðið vel fullt í kringum tréð en Lilju þótti ekki nóg. Hún var búin að spyrja allan daginn hvenær jólin kæmu því ég var búin að segja henni að við myndum opna pakkana þegar jólin kæmu. Hún fékk þó að opna einn pakka á meðan Þórður lagði loka hönd á matinn. Litli kútur svaf allt af sér. Var ekkert að láta allt þetta pakkaflóð trufla sig þetta árið, en ætli þetta verði ekki eina árið sem það gerir það hehe...
Jóladagurinn var svo tekinn snemma þar sem við lögðum land undir fót. Fórum alla leið í sveitina til ömmu og afa en tókum þó nokkur góð stopp á leiðinni til að teygja úr mannskapnum. Manni finnst varla vera jól nema maður fari til ömmu og afa á jóladag. Við vorum svo hjá ömmu í Vík um áramótin. Það var síðan kíkt á kaffihúsið... komin ár og öld síðan ég hef farið þangað. Ragna og Fúsi klikka ekki við að halda uppi stuðinu og höfðu þau liðsstyrk núna... Einsi og Fjalar spiluðu með þeim.
Við héldum síðan heim á nýársdag. Lilja varð eftir í sveitinni hjá ömmu sinni og afa en kemur heim um helgina. Við litli kútur erum svo bara í letistuði hér heim. Köllum það bara ferðaþreytu hehe...
Knús á ykkur frá mér og mínum fyrir gjafir og kort.... ![]()
p.s. gleymi alveg að segja ykkur að litli kútur er farinn að brosa... ekki lengur bara "magabros" hehe...
...Hrönn Brandsdóttir
kemur hún frá hjartarótum mínum
að hún megi öllu sínu skarta
jólahátíðin í þínu hjarta
færa þér þá gleði sem þú þráir
og að jólaboðskapnum þú náir
þó lágt á lofti sé nú sól
þá eigðu samt Gleðileg Jól
Höfundur H.G
Fréttir frá lækni...Hrönn Brandsdóttir
Það var sprautað skuggaefni í þvaglegg til að sjá hvort allt væri eðlilegt þar og það var svo nema það eru einhverjir 2 "gúlpar" á þvagblöðrunni sem gætu orsakað sýkingu ef blaðran tæmist ekki nóg. En hún er víst að tæmast vel svo það þarf ekki að hafa áhyggjur af því.
Það var tekin mynd af nýrunum og allskonar efni sprautað í pjakkinn til að sjá hvernig virknin væri hjá nýranu þar sem útvíkkunin er. Nýrað er að safna of miklu og tappar frekar hægt af sér. Læknirinn sendir þessar niðurstöður til barnaskurðlæknis fyrir sunnan og lætur hann og einhvern annan lækni meta þetta líka. Spurning hvort þetta sé eitthvað sem yrði lagað fljótlega eða þá að beðið yrði með það. Svo nú bíðum við bara áfram eftir að fá aðra símhringingu frá lækninum á Akureyri þegar hún verður búin að fá niðurstöður frá læknunum fyrir sunnan.
Er frekar óþægilegt að geta ekki vitað nákvæmlega strax hvað verði gert. En ég ætla að reyna að leiða það hjá mér og njóta jólanna þar sem við fáum hvort sem er ekkert að vita fyrr en eftir þau. Bjargar því að þetta er eitthvað sem er ekki að valda honum neinum kvölum svo maður á auðveldara með það.
Endalausa læknavesen... ég er að fara með Lilju til læknis á morgun því hún er öll útsteypt í framan í litlum rauðum doppum. Eins og hvað maður er búinn að fara oft með hana til læknis frá því hún fæddist að þá þótt ótrúlegt sé hef ég ekki þurft að fara með hana til læknis frá því í október á síðasta ári! Tel það bara mjög gott miðað við hennar veikindaferil.
Best að koma sér í áframhaldandi undirbúning fyrir jólin.
Jólin er´að komaaa....Hrönn Brandsdóttir
Jább búin að losa mig við jólakortin... já og einn jólapakka í póst. Var samt orðin frekar mikið svartsýn á að geta komið myndum í jólakortin í ár. Þar sem báðar tölvur heimilisins voru/eru í viðgerð að þá er ég að notast við tölvuna hennar tengdó. Ætlaði mér að tengja prentarann okkar við tölvuna en einhverra hluta vegna vildi bara ekkert gerast... Ég fór því og náði í gamla tölvuskrjóðinn minn. Fartölvan mín er næstum handsnúin þar sem hún er bæði orðin gömul já og svo er hún ekki alveg sú hraðskreyðasta. Kemst ekki einu sinni orðið lengur á netið með henni. Eftir mikla baráttu við að reyna að koma prentaranum saman við hana, að þá hafðist það á endanum svo mér til mikillar ánægju verða myndir í kortunum í ár... Þegar ég minnist á myndirnar... úfff... það var nú hægara sagt en gert að taka þær... en það hafðist þó að ná allavega einni sæmilegri mynd af þeim systkinum saman. Núna er bara að koma sér í að taka almennilega til hér á heimilinu fyrst allt annað er að verða klappað og klárt. Held það séu bara 2 pakkar óinnpakkaðir svo það eru engin ósköp. Þarf allavega að nýta tímann vel í svona dútl að ganga frá dóti og þrífa eitthvað þar sem ég nenni ekki að hafa Lilju yfir mér núna næstu 2 daga þar sem dagurinn í dag fór í ekki neitt hér heima.Við fórum sem sagt með litla kútinn á Akureyri í dag. Við vitum samt ekkert hvað kom út úr þessu öllu saman. Læknirinn ætlar að hringja í okkur á morgun og segja okkur niðurstöður. Annars var ég búin að skrifa svona það helsta hvað var gert á síðunni hans www.tordarson.barnaland.is .
Það var mikið að gerast í dag... það er komin lítil prinsessa í fjölskylduna. Svana, systir Þórðar, átti hana í dag. Svo kúturinn er bara orðinn stóri frændi þrátt fyrir að vera aðeins 19 daga gamall.
Kem með fréttir af pjakknum um leið og ég veit eitthvað....
Loksins...Hrönn Brandsdóttir
Við erum bara búin að vera að bíða eftir að fá að vita eitthvað síðan við fórum með litla kút í sónarinn. Það var síðan hringt í mig, fljótlega eftir hádegið áðan, og mér tjáð að það þyrfti að skoða hann eitthvað betur. Læknirinn hér á Króknum og barnalæknirinn á Akureyri vildu að hann færi helst fyrir jól svo við eigum tíma á miðvikudagsmorgun uppá barnadeild á sjúkrahúsinu á Akureyri. Hjúkrunarfræðingurinn sem hringdi í mig sagði mér einhver ósköp en ég í minni "brjóstaþoku" man ekki nákvæmlega allt sem hún sagði... en ég náði nú aðalatriðunum sem náttla skipta einhverju máli hehe...
Það á sem sagt að mynda nýrun og þvagfæri og svo á að setja legg í þvagrásina og sprauta skuggaefni til að ath hvort það gangi til baka eða ekki. Svo var hún að troða einhverjum fræðiheitum inní þetta svona aðeins til að rugla mig hehe... Æ maður verður alltaf smá kvíðinn fyrir svona þegar það á að potast svona í pínulítinn líkama. Vona bara að mjólkin detti ekki niður hjá mér eins og gerðist þegar Lilja veiktist mánaðagömul.
Annars var helgin bara voða löt... Gerði eiginlega ekki neitt af því sem ég ætlaði að gera en það kemur sér að maður er bara heima og getur svona smá dútlað sér. Við fórum í heimsókn til ömmusystur Þórðar. Þar kom ég auga á nokkrar bækur sem ég á eftir að lesa. DaVinsi lykillinn og svo nokkrar eftir Arnald Indriða. Fékk eina með mér svo mér á ekki eftir að leiðast. Dagurinn í dag hefur annars líka verið frekar latur...Sá stutti var mjög skemmtilegur og sofnaði ekki fyrr en um 4 í nótt. Ég þurfti náttúrulega að vakna kl hálf 9 til að koma Lilju í föt og gefa henni að borða áður en Þórður kom og skutlaði henni í leikskólann. Ég skreið síðan bara aftur uppí og rankaði við mér rétt fyrir kl 12 þegar sá stutti vaknaði. Ef ég sofna svona fyrir hádegi aftur á ég svo erfitt með að koma mér almennilega í gang yfir daginn. Svo ég vona bara innilega að hann sjái sér fært að sofa í nótt svo ég komist í einhvern gír í fyrramálið.
Ætla að halda áfram að gera lokahönd á jólakortin...
